Hvađ segiđ ţiđ um...Hlín Ólafsdóttir

... þriðjudaginn næsta, þann 23. okt fyrir hittinginn? Hlæjandi

party

Skvísuhittingur!!!Hlín Ólafsdóttir

limbó partý

Ef það les þetta einhver ennþá Þögull sem gröfin Ég legg þetta allavega undir ykkur hér til að byrja með.
Guðrún, Erna, Svava, Hrefna, Begga og Kristín, er ég að gleyma einhverri? Æ, þið minnið mig þá bara á, ég þjáist af mikilli brjóstaþoku þessa dagana Óákveðinn
Hvernig líst ykkur á skvísuhitting heima hjá mér, fimmtudaginn 25. okt. kl. 19 eða 20?
Ég skaffa kaffi, gos og eitthvað smá gúmmelaði, svo megi þið endilega koma með eitthvað gómsætt með ykkur líka Hlæjandi
Ef það verður dræm mæting reynum við bara að finna einhvern annan dag. En endilega látið í ykkur heyra ef þið lesið þetta!

nú er ţađ dökkbrúnt...Hlín Ólafsdóttir

... hárið á mér! Lét lita það í dag og klippa þessi örfáu strá sem eftir eru á kollinum. Ég þarf aðeins að venjast þessu það er langt síðan ég hef verið svona dökkhærð, en það er alltaf gaman að breyta til, þetta er jú minn "náttúrulegi" litur Svalur

Matthildur skjáta er farin að sofa betur, mömmunni til mikillar gleði. Hún sofnar núna sjálf í sínu rúmi, ótrúlega dugleg.
Af því ég er nú farin að fá 3-4 tíma samfelldan svefn, er mig farið að dreyma aftur, þvílíka bullið alltaf hreint...
Í fyrrinótt var ég föst í því að undirbúa brúðkaup fyrrverandi kærasta og hans spússu. Ég var alla nóttina(undirbúninginn) að reyna að fela mig fyrir honum, því mér fannst ég vera að skemma eitthvað ef hann sæi mig. Svo þegar ég var búin að gera hjónasvítuna reddý, steinsofnaði ég fram á hjónarúmsbrúnina og vakna við það að nýgifta parið gengur inn Skömmustulegur , glatað!

En nóg af bulli í bili ég verð að fara að undirbúa famelíuna fyrir Köben ferðina góðu.

Hér erum viđ, um okkur, frá okkur, til okkar...Hlín Ólafsdóttir

VIÐ Matthildur erum allar að koma til og skelltum okkur í leikfimi og ungbarnasund í dag. Ég segi ekki lengur ég, heldur VIÐ, því VIÐ mæðgurnar erum náttúrulega límdar saman alla daga Hlæjandi

Það fóru 700 grömm af "grease" þessa vikuna. Það kom mér ótrúlega á óvart, því ég er búin að vera á kafi í nammipokanum og var komin í áskrift hjá dominos á meðan við mæðgur vorum lasnar. En ég get ekki sagt að ég gráti þau (grömmin sko)Ullandi

Hafið það gott um helgina, VIÐ ætlum allavega að liggja í leti, avea...

Fyrir Svövu sćtu...Hlín Ólafsdóttir

Ég hef nóg að gera í "orlofinu" svo bloggið situr á hakanum.
Annars er búið að vera ástand á heimilinu undanfarna daga. Matthildur mús fékk bólgu í annað eyrað sitt. Mamman þurfti að taka ein á ástandinu því pabbinn var í útlöndum.

Ég gekk því um gólf í tvær nætur og tvo daga og veiktist svo sjálf á endanum. Þannig að það var engin glæsó kona sem tók á móti kallinum eftir ferðalagið, það var meira svona " hérna (rétta Matthildi), ég er farin í sturtu og svo inn að sofa"
Matthildur hefur haldið mér alveg við efnið á nóttu sem degi frá fæðingu og sofið í 1-2,5 tíma dúrum, þannig að ég mátti eiginlega ekki við þessu, en ég lifi ennþá (rétt svo)Ullandi

Ég er líka byrjuð í ræktinni, þarf að losna við nokkur auka, maður sækir nefnilega svo í óhollustuna í svefnleysinu. Það gengur bara fínt, það lak af mér rúmt kíló fyrstu vikuna, held samt að það hafi komið aftur í veikindunum því þá fór öll hollustan út í veður og vind, en þetta hefst á endanum Glottandi

Gapandi kveðjur úr svefnmókinu/galsanum

ps. Vonandi skemmtirðu þér yfir þessu Svava mín, þú veist þá hvað bíður þín, hahahaha...  Djók!! Þitt barn á eftir að sofa á sínu græna allar nætur.

Taraddatammm, taraddatamm....Hlín Ólafsdóttir

Mér var boðið í þrítugs afmæli á laugardaginn og ég þáði auðvitað boðið. Afmælið breyttist svo skyndilega í brúðkaup, gestunum til ómældrar ánægju Hlæjandi Mig var samt farið að gruna þetta og hvíslaði því í eyrað á Árna þegar við mættum á staðinn. Þetta var svaka flott, haldið undir berum himni útí sveit. Presturinn smokraði sér bara allt í einu út úr einu kjarrinu í fullum skrúða.
Þetta var allt voða kammó og kasjúal, það var grillað ofaní liðið og svo var heimsins besta snikkerskaka í eftirrétt. Dansinn dunaði svo við undirleik tveggja trúbadora langt fram á nótt. Við fjölskyldan stungum þó af fljótlega eftir matinn og tókum annað barn brúðhjónana með okkur. Brúðguminn mætti svo kvöldið eftir til að sækja pjakkinn, ennþá klæddur í brúðkaupsfötin Glottandi



Tóta tönnHlín Ólafsdóttir

Ég fór til tannsa í síðustu viku, í fyrsta skipti síðan 2004.Skömmustulegur Ég var náttúrulega búin að undirbúa mig undir miklar viðgerðir og himinháan reikning. Eftir vikulangt svitakast og óráð í hálfan sólarhring, settist ég í stólinn og byrjaði strax að afsaka mig með tali um fátæka námsmanninn, tímaskort og þessháttar bull. Tannsi spurði mig svo hvort ég hefði fundið fyrir einhverjum óþægindum í tönnunum og ég benti honum á nokkra staði þar sem ég var alveg viss um að Karíus og Baktus væru búnir að byggja sér lúxusvillur.  Hann skoðaði, potaði, skrapaði og tók myndir og taddara..... fann ekki neitt Svalur Jebb, ekki eina einustu skemmd, bara smá tannstein sem var fljót afgreiddur. Lofaði svo að koma í tékk eftir ár, eitt en ekki þrjú Glottandi

Nenni ekki ađ blogga....Hlín Ólafsdóttir

... og hef svosem ekkert að blogga um. Svo hér koma myndir Glottandi

Matthildur

Rúsínusnúllan

Hörður og Matthildur

Fallegustu börnin

Matthildur

Sjáumst!

Heima/HvarfHlín Ólafsdóttir

http://mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1282768
Ég hlakka ekkert smá til að sjá þessa mynd og hlusta á plötuna.
Við vorum einmitt á tónleikunum  sem voru að Hálsi í Öxnadal. Alveg mögnuð upplifun!!

Sigurrós að Hálsi

Sigurrós að Hálsi

Snúlli

Miss world 1989Hlín Ólafsdóttir

Matthildur er búin að vera voða notó undanfaranar nætur og vakna á ca. 2 tíma fresti til að súpa. Þannig að augnlokin mín eru ansi þung þessa dagana.
Matthildur stóð sig þó þrusu vel í fyrsta hlutverkinu sínu í auglýsingabransanum og heillaði alla upp úr skónum. Hún var samt ekkert mikið að brosa í tökunum, en hún þurfti þess heldur ekkert Glottandi Hún var í svaka flottum rauðum galla merktum miss world 1989. Svo bíðum við bara spennt að sjá hvernig útkoman verður. Hennar atriði er bara ca. 5 sek., en gaman af þessu engu að síður.

Nú er mál að fara að huga að heilsunni, enda komnir 3 mánuðir síðan daman fæddist. Það fyrsta í heilsueflingunni er að minnka aftur sykurinn, það verða þó engar öfgar svona til að byrja með. Svo er á áætluninni að fara oftar í göngutúr

ave í bili....

Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

Atburđarteljari